Hjörtur Guðbjartsson

Árásir á Reykjanesbæ – smjörklípuárásir

Hjörtur Guðbjartsson„Nú hafa bæjarstjóri og formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar skrifað tárvott bréf til Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra vegna yfirlýsinga hennar varðandi samning um sölu Reykjanesbæjar á hlut sínum í HS Orku. Vilja þeir meina að þarna sé eingöngu um flokkspólitískar dylgjur að ræða, allir virðast vera á móti þeim og á móti okkur Reyknesingum.“ Skrifar Hjörtur Guðbjartsson formaður Uglu.

Hjörtur Guðbjartsson

Hvert skal stefnt í atvinnumálum á Íslandi?

„Við þurfum að horfa meira til litlu og meðalstóru fyrirtækjanna sem nú eru starfrækt í landinu í bland við nýsköpun og sprotafyrirtæki. Öll þau litlu og meðalstóru fyrirtæki sem nú eru starfandi á Íslandi þurfa nauðsynlega á hjálp að halda til að eiga möguleika á að starfa áfram.“ Skrifar Hjörtur Guðbjartsson formaður Uglu.

Sema Erla Serdar

Ófyrirgefanleg vinnubrögð „lýðræðisríkisins“ Ísraels

Eftir að vopnahlé Ísraelsmanna og Palestínumanna rann út í sandinn fyrir nokkrum vikum síðan tók „lýðræðisríkið“ Ísrael sér á hendur eitt blóðugasta og umdeildasta verkefni síðari ára, að útrýma Hamas-samtökunum, sem unnu stóran sigur í þingkosningunum í Palestínu árið 2006 og eru því lýðræðislega kjörnir fulltrúar Palestínu, þó flest vestræn ríki telji Hamas-samtökin vera fátt annað en hryðjuverkasamtök.

Sema Erla Serdar

Sjálfstæðismenn hugsa um sjálfa sig

Hvers vegna fer fólk út í pólitík?, spyr  Sema Erla Serdar, alþjóðafulltrúi UJ í grein dagsins. Sema sat þing UNR fyrir hönd UJ og deildi við unga íhaldsmenn um stuðning við mannréttindabaráttu Palestínumanna.

Hilmar Kristinsson

Heilsugæslan fælir

,,Góð heilbrigðisþjónusta er ein af grundvallarforsendum í ákvarðanatöku fjölskyldufólks sem er að velja sér búsetustað, þá sérstaklega ef að börnin eru mjög ung eða þörf er á tíðum læknisheimsóknum”. Segir Hilmar Kristinsson formaður Uglu – Ungra jafnaðarmanna á Suðurnesjum.

Sema Erla Serdar

Við getum haft áhrif!

,,Það var löngu orðið tímabært að íslenska ríkisstjórnin færi að beita sér af alvöru í þessari blóði drifnu deilu fyrir botni Miðjarðarhafs og tæki þátt í friðarferlinu”. Segir Sema Erla Serdar.

Hilmar Kristinsson

Vert’ ekki feiminn

„Margir telja sig ekki hafa nægilega þekkingu til þess að taka þátt í stjórnmálum en gera sér ekki grein fyrir því að flest okkar taka þátt í umræðum um stjórnmál oftar en við gerum okkur grein fyrir. Þegar við ræðum það hve hátt olíuverðið sé orðið eða skömmumst yfir löngum biðtíma á heilsugæslunni þá erum við að ræða málefni sem eru einnig hlutar hinnar pólitísku umræðu. Það er enginn sérfróður um allt sem tengist stjórnmálum en öll höfum við eitthvað fram að færa. Galdurinn er aðeins sá að taka fyrsta skrefið.“ Skrifar Hilmar Kristinsson, formaður Ungra jafnaðarmanna á Suðurnesjum.

Ritstjórn Uglu

Er álið málið?

„Stóriðjuframkvæmdir hafa verið í sviðsljósinu á Íslandi og Suðurnesin eru þar ekki undanskilin. Stóriðjuáformin eru farin að teygja sig hingað á svæðið og þess vegna telja Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum að nauðsynlegt sé fyrir íbúa svæðisins að taka þátt í umræðunni og kynna sér þau málefni sem snúa sérstaklega að Suðurnesjum. Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum ætla að halda opinn fund í janúar þar sem rætt verður um stóriðju og fyrirhugað álver í Helguvík.“ Skrifa Hilmar Kristinsson, Guðlaug Finnsdóttir og Kristín Magnúsdóttir.

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir

Þjóðarskútan að sökkva?

„Hinn mikli uppgangur sem er nú í þjóðarbúskapnum jaðrar við ofþenslu og hefur áhrif á öra aukningu þjóðarútgjalda. Hið mikla hagvaxtarskeið á sér enda og er því varhugavert að reiða sig á mjúka lendingu. Þjóðarbúið þarf því að undirbúa sig vel því lendingin gæti verið allharkaleg með gengisfalli og skörpum samdrætti þjóðarútgjalda.“ Skrifar Brynja Magnúsdóttir.

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir

Af hetjum og baráttufólki

„Lítið stoðar að hafa svæfingarlækni og skurðlækni sofandi í Reykjavík þegar bráðaástand hefur skapast, Reykjanesbrautin er jafnlöng í báðar áttir.“ Skrifar Brynja Magnúsdóttir.

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir

Samkynhneigðir mega vera hjón, giftast upp á títuprjón?

„Förum alla leið og veitum samkynhneigðum rétt til jafns á við gagnkynhneigða hér á Íslandi. Ég tel kirkjunnar menn mega fara að takast á við þessa umræðu í stað þess að fela sig alltaf á bakvið lagabókstafi. Því þarf að breyta!“ Skrifar Brynja Magnúsdóttir.

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir

EES og ESB – ólík orðræða

„Forsendur EES samningsins fyrir Íslendinga hafa breyst allverulega, ekki bara vegna þeirra sáttmála er samþykktir hafa verið innan ESB heldur hefur EFTA stoð hans rýrnað. [...] Hið mikla áhrifa- og aðkomuleysi sem virðist einkenna að miklu leyti Evrópusamstarf Íslendinga hlýtur að vera áhyggjuefni.“ Skrifar Brynja Magnúsdóttir.

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir

Bubba vantar Brynju!

„Sláandi fyrirsagnir selja, svo einfalt er það! Sú blaðamennska sem virðist tröllríða litla Íslandi er hasarfréttamennska.“ Skrifar Brynja Magnúsdóttir.

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir

Elliheimili nútímans

„Fjölmargir hafa látið sig varða mál aldraðra nú uppá síðkastið og skrifað greinar um þennan mikilvæga málaflokk en oft á tíðum eru skrifin neikvæð í garð öldrunarstofnana. Engu líkara en stofnunin sé svo mikil stofnun að ekki sé pláss fyrir hið mannlega innan veggja hennar og þar afleiðandi ekki hina öldruðu.“ Skrifar Brynja Magnúsdóttir.

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir

Landsbyggðarvælið í kellingunum!

„Það er ekki bara atvinnuleysið sem hrjáir Suðurnesjakonuna heldur er það öryggisleysi líka og á allt öðrum vígvelli en á atvinnumarkaðnum, að þessu sinni á fæðingardeildinni.“ Skrifar Brynja Magnúsdóttir.

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir

Píkur allra landa sameinist!

„Að minnsta kosti ein af hverjum fjórum konum verður fyrir kynferðisofbeldi. Allar konur þekkja einhverja sem hefur sögu að segja, við sjálfar getum sagt sögur, það sem bindur konur saman víðsvegar um heim eru hinar ýmsu píkusögur.“ Skrifar Brynja Magnúsdóttir.

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir

Þjónustutilskipun ESB gegn réttindum launafólks?

„Í viðleitni sinni til að koma að fjórfrelsinu svokallaða; frjálst flæði fjármagns, frjálst flæði fólks, frjálst flæði þjónustu og frjálst flæði vöru er vegið að stoðum velferðarþjóðfélagsins og grundvallarréttindum launafólks. Eitt af atriðum tilskipunarinnar er svokölluð upprunalandsregla sem veldur því að hægt er að greiða launþega lægstu leyfileg laun þegar horft er til heimalands viðkomandi.“ Skrifar Brynja Magnúsdóttir.

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir

Játningar yfirlísts ó-jólabarns

„Ég er ekkert sérlega mikið jólabarn“ skrifar Brynja Magnúsdóttir.

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir

Varnarmál

„Núna hef ég gerst brotleg á Suðurnesja vísu og sagt það sem má ekki segja; Herinn er að fara! Þetta er ekki hvatningahróp til hans, þetta er ekki kveðja, heldur einföld staðreynd sem mér þætti vænt um að fleiri myndu sætta sig við og viðurkenna. [...] Leyfum þeim að fara. Íslendingar eiga líka að hafa sína EIGIN utanríkisstefnu sem einkennist af friðarvilja. Pant vera í því liði sem stuðlar að friði og uppbyggingu í heiminum, en ekki því sem spilar til að vinna – með stóra bróður.“ Skrifar Brynja Magnúsdóttir.

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir

Sálartetur og peningar

„Börn og aðrir minna þroskaðir menn eru aðalumræðuefnið í dag. Alveg sama hvar maður er staddur snýst umræðan um verkfall grunnskólakennara, og engan skyldi undra þar sem áhrif þess eru gífurleg. Um 45 þúsund börn verða fyrir barðinu á verkfallinu og ófá heimilin í landinu lamast.“ Skrifar Brynja Magnúsdóttir.

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir

Fyrsta skiptið…

„Salurinn sem mér eitt sinn hafði þótt stór tilsýndar í sjónvarpi minnkaði mikið þegar ég sá hann fyrst fyrir nokkrum árum og þannig var hann ennþá þegar ég settist í sætið“ skrifar Brynja Magnúsdóttir um fyrstu setu sína á Alþingi.

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir

Á gamli bærinn að samsvara gömlum tímum?

„Sú var tíðin í ,,gamla daga” að háir kantar, brattar tröppur og þröngar dyragættir gerðu fötluðum einstaklingum erfitt fyrir að nýta sér þá þjónustu sem bauðst í þeirra heimabæ. Með upplýstu samfélagi og réttindabaráttu hefur þessu verið kippt í liðinn á flestum stöðum og það er lágmarkskrafa að þegar hafist er í framkvæmdir að hugsað sé fyrir aðgengi fyrir alla. Eða hvað…?“ Skrifar Brynja Magnúsdóttir.

Steinþór Geirdal Jóhannesson

Falleinkunn Georgs

„Kemur ekki á óvart því þegar sjálfstæðismenn þurfa að reikna eitthvað sjálfir koma upp erfiðleikar. Þeir hafa ekki þroska til að takast á við vandamálin þó þeim sé boðið hjálparhönd. Oft er það þannig ef nemandi lendir í erfiðleikum þá leitar hann aðstoðar kennara.“ Skrifar Steinþór Geirdal Jóhannesson.

Hallbjörn Valgeir Rúnarsson

Við þorum. Þorir þú?

„Ungir Jafnaðarmenn á Suðurnesjum börðust hart fyrir því að fá fulltrúa ungs fólks á Suðurnesjum ofarlega á framboðslista Samfylkingarinnar. Það var hlustað á unga fólkið í Samfylkingunni og við fengum það í gegn. Brynja Magnúsdóttir er fimmti maður á S – lista í Suðurkjördæmi.“ Skrifar Hallbjörn V. Rúnarsson.

Steinþór Geirdal Jóhannesson

Reikningspróf Georgs

„Þegar núverandi ríkisstjórn tók við fyrir 8 árum eða árið 1995 var skattaprósentan 41,93% en hún er nú 38,55%. Þetta er alltaf notað til að halda því fram að staðgreiðsluskattar hafi verið lækkaðir. Það er hins vegar ekki rétt því pesónuafsláttur hefur ekki fylgt almennri launaþróun. Hann ætti nú að vera kr. 37011 en er nú kr. 26821.“ Skrifa Steinþór Geirdal Jóhannsson.