
Ugla – ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum er nafn ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar á Suðurnesjum. Hreyfingin var stofnuð 1. nóvember 2002. Ugla er opinn og lýðræðislegur vettvangur fyrir skapandi umræður og félagsstarf ungs jafnaðar- og félagshyggjufólks.
Ugla hefur það markmið að efla nýsköpun og frumkvæði ungs jafnaðar- og félagshyggjufólks með því að stofna til víðtækra skoðanaskipta, umræðna og málefnavinnu, einkum í málaflokkum sem varða líf ungs fólks, sem byggja á grunnhugmyndum jafnaðarstefnunnar um frelsi, jafnrétti, og bræðralag.
Ugla hefur það markmið að auka samskipti og samkennd ungs jafnaðar- og félagshyggjufólks með öflugu félagsstarfi og útgáfu.
Ugla aðhyllist lýðræðislegt þjóðskipulag byggt á virkri þátttöku almennings, valddreifingu, fyllstu mannréttindum og félagslegu réttlæti.
Aðild að Uglu geta átt allir einstaklingar á aldrinum 16 – 35 ára sem vilja vinna að framgangi félagshyggju og jafnaðarstefnu og gangast undir lög félagsins.
Ugla starfar í samvinnu við félög Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, Grindavík, Sandgerði, Sveitarfélaginu Garði og Sveitarfélaginu Vogum.
