Sarpur vefs Uglu

Sarpur fyrir mánuðinn september, 2009.

Ný stjórn Uglu tekur við að loknum aðalfundi

Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Uglu – ungra jafnaðarmanna á Suðurnejum sem var haldinn miðvikudaginn 23. september. Nýr formaður Uglu er Jóhann Már Smárason sem tekið við af Hyrti Guðbjartssyni.

Á fundinn mættu góðir gestir, þau Róbert Marshall Alþingismaður og Sveindís Valdimarsdótti bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ.

Í lok fundar var fráfarandi stjórnarmönnum, þeim Guðlaugu Finnsdóttur, Hilmari Kristinssyni, Semu Erlu Serdar, Svavari Grétarssyni og Róberti Jóhannssyni, þökkuð vel unnin störf í stjórn Uglu.

Árásir á Reykjanesbæ – smjörklípuárásir

Hjörtur Guðbjartsson„Nú hafa bæjarstjóri og formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar skrifað tárvott bréf til Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra vegna yfirlýsinga hennar varðandi samning um sölu Reykjanesbæjar á hlut sínum í HS Orku. Vilja þeir meina að þarna sé eingöngu um flokkspólitískar dylgjur að ræða, allir virðast vera á móti þeim og á móti okkur Reyknesingum.“ Skrifar Hjörtur Guðbjartsson formaður Uglu.

Aðalfundur Uglu

Aðalfundur Uglu – ungra jafnaðarmanna á Suðurnesjum verður haldinn miðvikudaginn 23. september nk. á skrifstofu Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ að Hafnargötu 35 (fyrir ofan Voila).
Tekin verða fyrir hefðbundin aðalfundarstörf.
Ef þú hefur áhuga á því að bjóða þig fram í stjórn Uglu þá geturðu sent póst á ugla@uj.is eða hringt í 848 6922.

Með kveðju,
Hjörtur M Guðbjartsson
Formaður Uglu