Sarpur vefs Uglu

Sarpur fyrir mánuðinn janúar, 2009.

Ófyrirgefanleg vinnubrögð „lýðræðisríkisins“ Ísraels

Eftir að vopnahlé Ísraelsmanna og Palestínumanna rann út í sandinn fyrir nokkrum vikum síðan tók „lýðræðisríkið“ Ísrael sér á hendur eitt blóðugasta og umdeildasta verkefni síðari ára, að útrýma Hamas-samtökunum, sem unnu stóran sigur í þingkosningunum í Palestínu árið 2006 og eru því lýðræðislega kjörnir fulltrúar Palestínu, þó flest vestræn ríki telji Hamas-samtökin vera fátt annað en hryðjuverkasamtök.