Sarpur vefs Uglu

Sarpur fyrir mánuðinn janúar, 2008.

Vert’ ekki feiminn

„Margir telja sig ekki hafa nægilega þekkingu til þess að taka þátt í stjórnmálum en gera sér ekki grein fyrir því að flest okkar taka þátt í umræðum um stjórnmál oftar en við gerum okkur grein fyrir. Þegar við ræðum það hve hátt olíuverðið sé orðið eða skömmumst yfir löngum biðtíma á heilsugæslunni þá erum við að ræða málefni sem eru einnig hlutar hinnar pólitísku umræðu. Það er enginn sérfróður um allt sem tengist stjórnmálum en öll höfum við eitthvað fram að færa. Galdurinn er aðeins sá að taka fyrsta skrefið.“ Skrifar Hilmar Kristinsson, formaður Ungra jafnaðarmanna á Suðurnesjum.