Sarpur vefs Uglu

Sarpur fyrir mánuðinn febrúar, 2007.

Uj-Suð vill almenna atkvæðagreiðslu um álver

Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum krefjast þess að íbúum á Suðurnesjum verði gert kleift að kjósa um fyrirhugað álver í Helguvík. Þessi ályktum var kynnt á fjölmennum oppnum fundi sem Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum héldu á Ránni í Reykjanesbæ í gærkvöld.

Ungir jafnaðarmenn halda opinn fund um álver í Helguvík

Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum hlada opinn fund um álver í Helguvík miðvikudagskvöldið 14. febrúar kl. 20:30 á veitingastaðnum Ránni. Þessi íbúafundur er fyrsti fundurinn sem gefur íbúum Reykjanesbæjar tækifæri til þess að kynna sér sjónarmið helstu hagsmunaaðila. Á fundinn mæta bæði fulltrúar Norðuráls og Landverndar auk þess að Guðný Hrund Karlsdóttir frambjóðandi Samfylkingarinnar fjallar um Fagra Ísland, stefnu Samfylkingarinnar í umhverfismálum. Fundarstjóri verður Róbert Marshall, frambjóðandi Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi.