

„Stóriðjuframkvæmdir hafa verið í sviðsljósinu á Íslandi og Suðurnesin eru þar ekki undanskilin. Stóriðjuáformin eru farin að teygja sig hingað á svæðið og þess vegna telja Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum að nauðsynlegt sé fyrir íbúa svæðisins að taka þátt í umræðunni og kynna sér þau málefni sem snúa sérstaklega að Suðurnesjum. Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum ætla að halda opinn fund í janúar þar sem rætt verður um stóriðju og fyrirhugað álver í Helguvík.“ Skrifa Hilmar Kristinsson, Guðlaug Finnsdóttir og Kristín Magnúsdóttir.