Ný stjórn Uglu tekur við að loknum aðalfundi
29.9.2009 | Ritstjórn Uglu
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Uglu – ungra jafnaðarmanna á Suðurnejum sem var haldinn miðvikudaginn 23. september. Nýr formaður Uglu er Jóhann Már Smárason sem tekið við af Hyrti Guðbjartssyni. Á fundinn mættu góðir gestir, þau Róbert Marshall Alþingismaður og Sveindís Valdimarsdótti bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ. Í lok fundar var fráfarandi stjórnarmönnum, þeim Guðlaugu Finnsdóttur, Hilmari Kristinssyni, Semu Erlu Serdar, Svavari Grétarssyni og Róberti Jóhannssyni, þökkuð vel unnin störf í stjórn Uglu. |

„Nú hafa bæjarstjóri og formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar skrifað tárvott bréf til Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra vegna yfirlýsinga hennar varðandi samning um sölu Reykjanesbæjar á hlut sínum í HS Orku. Vilja þeir meina að þarna sé eingöngu um flokkspólitískar dylgjur að ræða, allir virðast vera á móti þeim og á móti okkur Reyknesingum.“ Skrifar Hjörtur Guðbjartsson formaður Uglu.